Ferill 1011. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1476  —  1011. mál.




Fyrirspurn


til menningar- og viðskiptaráðherra um skýrslu starfshóps.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.


     1.      Hverjar voru niðurstöður skýrslu starfshóps, sem ráðherra skipaði í ágúst 2022, er skilaði skýrslu til ráðherra í apríl 2023 og var falið að skoða leiðir til að skapa eftirliti samkeppnis- og neytendamála nýja stjórnsýslulega stöðu innan stofnanakerfis ríkisins?
     2.      Hvers vegna hefur skýrsla starfshópsins ekki verið birt opinberlega?
     3.      Hvenær á að birta skýrslu starfshópsins?


Skriflegt svar óskast.